
Exclusive Networks, í samstarfi við Fortinet, heldur ókeypis hraðnámskeið á netinu fyrir alla áhugasama um að fræðast betur um:
„Protecting Your Business from Phishing and Email Fraud "
Advanced Email Security Solution
Netveiðar, svika- og blekkingarpóstar eru meðal stærstu öryggisógna sem fyrirtæki standa frammi fyrir í dag. CERT-IS hefur á þessu ári varað sérstaklega við svikapóstum sem beindust að rétthöfum .is léna, auk markvissra árása þar sem upplýsingar úr gagnalekum eru nýttar til að gera netveiðar trúverðugri og erfiðari í greiningu.
Á þessu hraðnámskeiði fá þátttakendur innsýn í hvernig hægt er að verjast þessum árásum með nýjustu lausnum Fortinet fyrir tölvupóstöryggi. Námskeiðið byggir á FortiMail og sameinar fræðslu og verklegar æfingar sem endurspegla raunverulegar ógnir sem fyrirtæki þurfa að takast á við í daglegum rekstri.
Allir eru velkomnir á þetta áhugaverða hraðnámskeið hvort sem þeir eru samstarfsaðilar Exclusive Networks eða viðskiptavinir þeirra.
Þetta geta þátttakendur átt von á því að læra á þessu hraðnámskeiði:
Dagsetning: 15. Október 2026
Tími: 9:00-13:00
Kostnaður: Ókeypis
Tungumál: Enska/English
Almennar upplýsingar
Námskeiðinu er skipt í almenna kynningu sem tekur um það bil 45 mínútur og síðan tæknilega þjálfun (labs) í framhaldi af kynningunni. Þátttakendum er velkomið að taka þátt í einungis almenna kynningarhlutanum eða taka þátt í báðum hlutum.
Allir eru velkomnir að skrá sig hvort sem um er að ræða samstarfsaðila Exclusive Networks eða viðskiptavini þeirra.
Hvað þarft þú?
Þátttakendur þurfa að tengjast námskeiðinu í gegnum Teams-tengil sem sendur verður í staðfestingarpósti eftir skráningu.
Þeir sem hyggjast taka þátt í verklega hluta námskeiðsins þurfa að hafa aðgang að Fortinet Training Portal. Við mælum með að þátttakendur hafi þegar skráð sig áður en námskeiðið hefst til að tryggja sem besta upplifun af verklegum æfingum.